Hvað seeeegi'ði þá stelpur....
Sælar dömur, hvað er svo spennandi í fréttum hjá ykkur?? ... eitthvað krassandi slúður :)
Hjá mér er það alltaf það sama, bara skóli og sundæfingar ... ekkert spennandi ... slúður hummm... fór í tvítugsafmæli í gær sem er svo sem ekki frásögu færandi nema að það var boðið upp á rútur niðrí bæ eftir partýið ... sööss! þar fór ég að spjalla við gæja sem virtist voða fínn, var í íþróttum og spilar á saxófón allt voða spennandi nema hvað svo spurði hann mig hvað ég væri að gera og ég sagði honum að ég væri í HR og blablabla svo spurði ég hann og hann svaraði: tja! ég var nú bara að BYRJA í menntó !!!!!! HAHAHAHAHAHAHAHA :) ... sööss! það er ekki öll vitleysan eins...
En eigum við ekki að fara að hittast og gera eitthvað saman, kíkja á kaffihús eða snæða saman t.d. á grænum kosti eða salatbarnum :)
Kveðja
Ragga

8 Comments:
Ég er meira en til í salat - hvað með Oliver aftur? Kósú-stemming :o)
Ragga mín maður getur byrjað 40 ára í menntaskóla þannig að ég veit ekki alveg hvort að hann hafi verið of ungur eða of ómenntaður - hehehehe.
Látið mig bara hvenær ég á að mæta og borða með ykkur hollustu ;o)
Ástarkveðjur - Hillarý (sem var á hörku þorrablóti um helgina! Gargandi snilld alveg)
hæ skvísulínur, já ég er til í salatbarinn eða óla með ykkur.. grænn kostur hljómar líka vel..
verðum í bandi..
Inga (sem var á hörku tíð um helgina! Gargandi snilld alveg.. híhíhíh)
Hæbbs...lingar!!
Segi bara allt það fínasta.....ég fer út eftir ca. 4 mánuði í sólina, alveg byrjuð að telja strax!! :D
Ohh já ég væri sko alveg til í MEIRA SALAT!!...HEHE
get sko ekki farið að gefa Lofthænu upp á bátinn;) annsi nánar þessa dagana.
Hvenær langar ykkur að hittast...mér er alveg sama á hvaða stað er farið, til í allt, tilbúin í hvað sem er með þér (ykkur) hahaha
Kveðja Sonja (sem alveg að koma að því að vinna yfir sig) :(
hæ hó
ok glæsó splæsó við erum allar til í að snæða saman :-)
Ég legg til að við hittumst fimmtudaginn í næstu viku klukkan 19.30 á salatbarnum eða oliver :)
...hafið það gott
Ragga
humm hildur blogg sérfræðingur... veistu af hverju "mikilvægar síður" eða þarna það sem er svo neðarlega á síðunni er komið svona rosalega neðalega á síðuna???
Ég lofa að nú var ég ekkert að fikta í neinu, var bara að taka eftir þessu :) ....
Hæ lingar.....já ég er alveg til í að hittast 16.feb 19.30. Mig langar samt meira á Óliver...hvað segi þið??
Ég segi nú það sama og þú Ragga, hvað kom fyrir síðuna okkar???
mér líst vel á´edda! 16. feb er flottur dagur!!
en nú spyr ég.. er hún Hildur okkar á lífi? át hún yfir sig af pungum, hákarli og súru slátri :o) hehehe.. nei djókurinn!! ;)
kv
Ingsalingur
nhoo bara allt orðið grænt og fínt :) ... vorið góða grænt og hlýtt bla bla bla bla bla bla ... mjög flott ;)
Post a Comment
<< Home