Hafnargellurnar

Wednesday, June 14, 2006

Hæ skvísur...ég rakst á þetta á blogginu hennar Gullýar og ég bara varð að stela þessu frá henni og skella þessu hérna inn á. Fynnst þetta viðbjóðslega fyndið!!

Draugadrjóli: Þú finnur hann koma út en það er enginn kúkur í klóinu þegar þú kíkir.
Hreinn skítur: Sá sem þú skítur og sérð í skálinni en það er ekkert á skeinipappírnum.
Eltikúkur: Þegar þú ert búin að kúka og búin að girða hálfa leið upp um þig og fattar að þú þarft að kúka meira.
Sprengja-æð-í-enninu hnulli: Sá sem þú þarft að hafa svo mikið fyrir að koma frá þér að þú færð næstum slag.
Dauðadrumbur: Svo ógeðslega stór að þú þorir ekki að sturta án þess að búta hann í sundur með blýanti.
Loftpressukúkur: Kemur með svo miklum látum að allir í kallfæri flissa.
Þynnkuskita: Kemur eftir fyllerí. Helsta einkenni hans eru bremsuförin í skálinni.
Maískúkur: Skýrir sig sjálfur.
Ohh-ég-vildi-að-ég-gæti-kúkað kúkur: Þú þarft að kúka en situr bara á dollunni og fretar. Mænustunguskítur: Þessi er svo brjálæðislega sársaukafullur að þú ert viss um að hann er á leiðinni út þversum.
Rasskinnableytuþrumari (Orkuþrumari): Fer út á svo miklum hraða að afturendinn á þér rennbleytist af klósettvatni.
Fljótandi drulla: Gulbrúnn vökvi frussast út um alla skál og rassgatið á þér með.
Háklassakúkur: Kúkur sem lyktar ekki.
Óvæntur kúkur: Þú ert ekki einu sinni á klóinu því þú hélst að þú þyrftir bara að prumpa en... úps, sparð.
Slórskítur: Kúkurinn losnar ekki frá rassgatinu á þér þó þú sért búin að kúka fyrr en þú hristir þig vel.
Atómsprengja: Þig svíður undan þessum á leiðinni út og svíður enn í marga klukkutíma á eftir. Skopparakúku: Hörð spörð sem fara eins og skopparaboltar um alla skálina (kostur þarf lítið að skeina)
Mikilmennskukúkur: þú rembist og rembist og svo kemur eitt pínulítið lambasparð. Íþróttaálfurinn: kemur ca. klukkutíma eftir leikfimina.
Klippikúkur: sem er svo langur að þú þarft að kúka - klippa - kúka - klippa...

hehehehehehe
Kveðja Sonja

6 Comments:

At 9:39 AM, June 14, 2006, Anonymous Anonymous said...

Maður er greinilega ekkert að vaxa upp úr klósettbröndurunum. Er með verki í maganum af hlátri :D SB

 
At 11:16 AM, June 14, 2006, Anonymous Anonymous said...

Ég veit það...þetta er sjúklega fyndið. Var að lesa aftur yfir þetta og hlæ ennþá meira!!!
Maður greinilega vex sko ekki upp úr þessu bröndurum!! ;)

 
At 1:01 PM, June 14, 2006, Anonymous Anonymous said...

söss þetta er rosalegt !! hehe

 
At 3:42 AM, June 15, 2006, Anonymous Anonymous said...

sjaldan hlegið jafn mikið hahah þetta er ógeðslega fyndið!!!! takk fyrir þessa upplyftingu sonja mín hihii

dagga

ps ég slysaðist til að stela þessu og setja á mitt blogg :D alveg óvart... ;)

 
At 12:17 PM, June 15, 2006, Anonymous Anonymous said...

já þetta er sjúkt.. las þetta hjá gullý og drapst úr hlátri!!! og með sauma og bólgur í kjaftinum!!

 
At 11:46 AM, July 11, 2006, Blogger Addi said...

Vá, hvað þið eruð slappar í blogginu, stelpur. Ekkert skárri en ég sjálfur.

Koma svo!

 

Post a Comment

<< Home